Gildir frá 1. mars 2015
- gildir frá 1. febrúar 2015 fyrir nýjar tengingar
Verðskrá Snerpu fyrir heimilistengingar tekur nokkrum breytingum og um leið verður framsetning þjónustunnar stokkuð upp og nýir þjónustuliðir kynntir. Verðbreytingarnar eiga við um heimilis- tengingar en einnig verður ein breyting á fyrirtækjatengingum sem felst í því að sk. línugjald verður innheimt sérstaklega í þeim tilfellum sem það á við, þ.e. ef virk símaþjónusta er ekki á sömu línu og tengingin er á. Helsti munur sem notendur sjá á reikningum verður að netáskrift verður framvegis tvískipt í aðgangsgjald og gagnamagnspakka.
Áfram verður eingöngu innheimt fyrir erlent niðurhal í gagnamagnspökkum.
Heimilistengingar eru einnig í boði til fyrirtækja en ekki er hægt að bæta við þær viðbótarþjónustum s.s. samtengingum innri neta, IP-símkerfum, VPN-lausnum eða sérstilltum eldveggjum. Bent er á sérhannaðar fyrirtækjalausnir sem upplýsingar fást um í netfanginu sala@snerpa.is
Helstu breytingar á heimilispökkum: