Skilaréttur
Skipti- og skilafrestur á óopnuðum og ónotuðum vörum sem keyptar eru hjá Snerpu er 14 dagar frá dagsetningu kvittunar fyrir. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð vörunnar og fæst það endurgreitt í formi inneignarnótu.
Skil á vöru eru háð eftirfarandi skilyrðum:
- Að framvísað sé kvittun fyrir kaupum á viðkomandi vöru.
- Að umbúðir séu ópnaðar og innsigli frá framleiðanda órofin.
- Að vara teljist í söluhæfu ástandi.
- Að allar handbækur, fylgihlutir, fylgigögn og umbúðir fylgi með í upprunalegu ástandi.
- Að ekki hafi verið settur upp hugbúnaður á vöruna/búnaðinn.
- Að varan sé ekki útsöluvara.
- Að varan sé ekki sérpöntun eða sérsniðin að þörfum viðskiptavinar.
Snerpa áskilur sér rétt til að hafna skilum á vörum séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.