Um Snerpu
Snerpa ehf. er einkahlutafélag á Ísafirði stofnað 25. nóvember 1994, en stofnendur þess eru Björn Davíðsson og Jón Arnar Gestsson. Þann 1. ágúst 1996 keypti Snerpa verslunina Hljómborg og flutti megnið af starfsemi sinni í aðstöðu Hljómborgar að Hrannargötu 2, en verkstæði Snerpu var þó áfram að Sindragötu 3. Árið 1998 keypti Snerpa nýuppgert tveggja hæða hús að Mánagötu 6, seldi eign sína við Sindragötu og flutti síðan alla starfsemina að Mánagötu. Árið 2018 keypti Snerpa verslunarhúsnæðið að Mjallargötu 1 og flutti þar inn í byrjun mars 2019.
Nafn fyrirtækisins er fengið frá Gagnabankanum Snerpu BBS, sem er forveri Internetþjónustunnar. Gagnabankinn Snerpa BBS var rekinn frá 1. mars 1992 til 15. júlí 1995, þegar Internetþjónusta Snerpu var opnuð.
Snerpa ehf. rekur alhliða tölvu- og netþjónustu auk ljósleiðarakerfis á Vestfjörðum. Stór þáttur í starfsemi félagsins er rekstur á alhliða Internetþjónustu og nær þjónustusvæði Snerpu yfir allt landið og í mörgum tilfellum víðar. Snerpa hefur yfir að ráða einu af stærri ljósleiðarakerfum landsins og rekur m.a. hnútpunkta í flestum þéttbýliskjörnum á Vestfjörðum. Snerpa hefur jafnframt mjög öflugar tengingar við Internetið um útlandagáttir og skiptistöð fyrir innanlandsumferð í Múlastöð í Reykjavík.
Hlutafé er 5.300.000 að nafnverði. Hluthafar eru 19. Hluthafar sem eiga meira en 10% eru: Björn Davíðsson 33,66%, Örn Ingólfsson 17,5% og Eskimo Rental 12%.
Snerpa er stofnaðili að Háskólasetri Vestfjarða.
Snerpa ehf.
Kennitala: 4301972319
Mjallargata 1
400 Ísafjörður
Internet úthlutanir:
RIPE: IP-net: 193.109.16.0/20
RIPE: AS-númer: 24743
IANA: ITAD-númer: 337 og 1391