Grundvallarregla Landvætta:
Til þess að verða Landvættur þarf að ljúka öllum atburðum á innan við 12 mánuðum. Hins vegar þarf það ekki að vera innan hvers almanaksárs og því er hægt að byrja á hvaða grein sem er. Það er því ágætis ráð að byrja á þeirri grein sem viðkomandi telur að hann sé lakastur í, því að þá gefast í raun tveir möguleikar á að ljúka þeim viðburði.
BIÐJUM FÓLK AÐ GÆTA FYLLST ÖRYGGIS , TAKA EKKI ÓÞARFA ÁHÆTTU OG NJÓTA ÞÁTTTÖKUNNAR
Tímabundnar reglubreytingar:
Mars 2025: Vegna jarðhræringa og tíðra eldsumbrota á Reykjanesskaga verður ekki hægt að halda Bláalónsþrautina 2025 .
Í staðinn er eftirfarandi í boði 2025
Opin æfing Útihreifingar með rásmark og mark við Elliðavatnsbæinn. 7.júní 30 og 60 km. utihreifing.is
Súlur Vertical malarhjól Start og mark í Kjarnaskógi að lágmarki 40 eða 100 km. 8.júní sulurvertical.is
Tour De Ormurinn á Fljótsdalshéraði Mark á Egilsstöðum að lágmarki 26 eða 68 km. 16. ágúst tourdeormurinn.is
Útskýringar:
Landvætturin vill taka það fram að hann kemur ekki að mótahaldi viðburðanna. Það er alfarið í höndum mótshaldara hvers viðburðar að setja reglur, til dæmis um tímamörk og fleira. Landvætturin leitar ávalt staðfestingar hjá mótshöldurum hvort viðkomandi hafi lokið keppni eða ekki. Það er keppikefli allra sem halda viðburðina að fólk fari burt með bros á vör og ánægjulegar minningar en jafnframt er rík áhersla á öryggi og velferð þátttakenda. Hér á landi getur til dæmis veður sett strik í reikninginn og stundum eru því gerðar ákveðnar breytingar á hefðbundum leiðum eða vegalengdum. Það er alltaf í höndum mótshaldara hvers að skilgreina hvort að viðkomandi hafi lokið keppni eða ekki. Þetta er samkv. þeirri hefð sem skapast hefur í svipuðum áskorunum eins og til dæmis "en svensk klassiker" í Svíþjóð.
Vegna mikils og um leið gleðilegs áhuga á því að verða félagi í Landvættunum og því að fjöldatakmarkanir einstakra atburða gera þetta nokkuð snúið hefur verið ákveðið að f.o.m. 2016 verði Þorvaldsdalsskokkið fullgildur liður í Landvættinum. Þetta þýðir að hlaupamöguleikarnir eru tveir (sjá thorvaldsdalur.umse.is)
Skráning fer fram hjá hverjum atburði fyrir sig.
SKRÁNING Í FÉAGIÐ, bæði aðal-og aukafélagar:
Þegar viðkomandi hefur náð að ljúka öllum greinunum sendir hann tölvupóst á landvaetturin@gmail.com. Þar þarf að koma fram nafn, kennitala, tölvupóstur og heimilisfang sem og tími í hverri grein. Landvætturin fer yfir úrslit og staðfestir að viðkomandi hafi skilað sér í mark í öllum viðburðunum og sé þannig fullgildur Landvættur. Í kjölfarið er send staðfesting í formi viðurkenningarskjals og merki félagsins sem hægt er að sauma á æfingagalla. Á viðurkenningarskjalinu er staðfesting á afrekinu , félagsnúmer og einnig samtals tími úr öllum fjórum greinunum.
Frá og með 2016 hefur verið hægt að verða aukafélagi í Fjölþrautafélaginu Landvættir.
LANGVÆTTUR: Sömu þrautir og í Landvættinum en tímamörkin allt að 48 mánuðir (4 ár). Sama tilkynningaform og í Landvættinum, sjá hér að ofan.
FJÓRÐUNGUR: Sund,hlaup,skíðaganga og hjólreiðar eins og í Landvættinum og þarf einnig að klára á innan við 12 mánuðum en innan hvers hinna fornu landsfjórðunga. Kröfurnar eru mun minni en að lágmarki eru þær eftirfarandi. Sund:400 metrar. Hlaup:2,5 km. Skíðaganga:5,0 km. Hjólreiðar: 10,0 km.(t.d. þríþraut plús skíðaganga)
Þarf að vera viðurkenndur atburður og skal tilkynna sig á landvaetturin@gmail.com þegar Fjórðungi er lokið og láta tíma úr þrautunum og dagsetningar fylgja með.
Sá sem afrekar alla fjórðungana á innan við 12 mánuðum fær titilinn Heiðursfjórðungur.
Mörk landsfjórðunganna:Vestfirðingafjórðungur frá Botnsá í Hvalfirði að Hrútafjaðará. Norðlendingafjórðungur þaðan að Skoruvíkurbjargi á Langanesi, Austfirðingafjórðungur þaðan að Lómagnúp, Sunnlendingafjórðungur þaðan að Botnsá í Hvalfirði.
UNGVÆTTUR:Ungvætturinn er fyrir 12-18 ára. Sömu reglur gilda og í Landvættinum en kröfurnar eru minni.
Lágmarkskröfur eru:
Skíðaganga: 12,5 km. í Fossavatnsgöngunni.
Hjól: 25 km. í Blue Lagoon Challenge
Sund: 500 m. í Urriðavatnssundinu.
Hlaup: 13 km. í Jökulsárhlaupinu eða 8 km. í Þorvaldsdalsskokkinu.
Skráning er á sama hátt og Landvættinum nema í Blue Lagoon Challenge þá er hún hjá gjaldkera Hjólreiðafélags Reykjavíkur, sjá nánar á fésbókarsíðu Landvættanna.
HÁLFVÆTTUR:Sömu reglur gilda og í Landvættinum og vegalengdakröfur eru að lágmarki helmingur af Landvættavegalengd. Ef að einhverjar þrautanna eru teknar í fullri lengd fær viðkomandi * í félagatalinu
Þetta snýst um að klára en ekki um tíma og því er möguleiki að að hafa vegalengdirnar mismunandi en að lágmarki helming af Landvættavegalengd.
Skráning er á sama hátt og í Ungvættinum.
Hafið gleði og gaman af.